Microneedling er árangursrík húðendurnýjandi meðferð þar sem örfínar nálar örva náttúrulega endurnýjun húðarinnar. Meðferðin virkjar framleiðslu kollagens og elastíns, sem stuðlar að stinnari, sléttari og ljómandi húð. Microneedling getur dregið úr fínum línum, bætt húðáferð, minnkað sýnileika öra og stækkaðra svitahola ásamt því að jafna húðlit og auka heilbrigðan ljóma húðarinnar.