A.t.h. Gelneglur er ný þjónusta hjá mér og því ekki komin skýr mynd á lengd tíma, tímar gætu því verið aðeins lengri en viðmið sem gefin eru upp <3
Munurinn á akrýlnöglum og gelnöglum er að akrýll er meira eins og "gler", þær eru harðari og hafa stökkari brot ef þær brotna en gelneglur eru meira eins og hart plast og hafa aðeins meiri seigju þó þær séu líka harðar. Mörgum finnst talsvert mýkri tilfinning að vera með gelneglurnar.
Hvoru tveggja eru úr sömu efnafjölskyldunni og er mjög misjafnt milli einstaklinga hvort fólk fílar betur.
Gelið er mótað á nöglinni/framlengingunni með bursta og með því að snúa höndinni til og á hvolf. Það hefur svipaða áferð og þykkt hunang þar til það er sett í lampa til að harðna