facebook pixel
Escolher serviço

S
Stjörnukortalestur - Stakur tími
85 min

Í stökum tíma í stjörnukortalestri getum við farið yfir hvað sem vekur áhuga þinn á stjörnuspekinni. Hvort sem það er að fara lauslega yfir stjörnukortið í heild sinni og þau atriði sem standa uppúr og eru mikilvæg að vera meðvituð um. Eða eins og að velta upp atvinnu möguleikum, hverju maður gæti leitast eftir í maka, stefnubreytingar í lífinu. Í raun hvað sem er. Með aðstoð stjörnukortsins geri ég mitt besta til þess að hjálpa þér að spegla hvað það er sem liggur á hjarta.

Markþjálfun - Stakur tími
55 min

Í stökum tíma í markþjálfun sé ég að mestu leiti um að hlusta og leifa þér að hlusta á sjálfa/n þig tala um það sem liggur þér á hjarta. Með því að fá að tala um hvað það er sem hjarta manns kallar eftir þá er hægt að finna eitthvað ákveðið, taka það og vinna með það. En einnig er hægt að nýta tíman þarr sem markmiðasetning er ekki endilega tekin inní myndina. Heldur væri þá notast við verkfæri markþjálfunarinnar til þess að spegla og komast nærri manni sjálfum til þess að rannsaka sjálfan sig. Því það er að mínu mati oftast í gegnum okkur sjálf sem við finnum öll bestu svörin. Þannig hægt er að hafa tímann mjög hnitmiðaðan. en einnig er hægt að nota hann sem rannsókn inní sjálfið. Þessa tíma er hægt að bóka aftur og aftur þar sem vegferð okkar samtals tekur sér sjálfstæða stefnu og við eltum hvert hún leiðir, dýpra að manni sjálfum/ri. Tíminn er eins og standur þér að kostnaðarlausu.