Hvað felst í jóga nidra einkatíma? Jóga nidra einkatími er persónusniðin leidd djúphugleiðsla, þar sem allt er lagað að þínum þörfum, markmiðum og aðstæðum. Einkatími er fyrir einstakling eða tvö saman (sama verð fyrir tvö saman). Engin reynsla af jóga eða jóga nidra þörf. Tíminn felur yfirleitt í sér: -Samtal í byrjun þar sem farið er yfir stöðu þína og þarfir. Aðstoð við að forma ásetning ef þörf er á. Möguleiki á að taka upp jóga nidra æfinguna á símann þinn, svo þú getur svo hlustað aftur og aftur að vild. Þú liggur þægilega á dýnu, með púða undir höfði og hnjám, með teppi yfir þér og augnhvílu á augunum, og færð leiðsögn í gegnum líkamsskönnun, öndunaræfingar, sjónræna ímyndun niður í djúpa hvíld. Líkaminn slakar á, meðan hugurinn helst vakandi, í ástandi milli svefns og vöku. Í lok tímans er mögulegt að ræða upplifunina og fá hagnýt ráð til að nýta áfram í daglegu lífi (valfrjálst). Fyrir þig sem: • finnur fyrir streitu eða álagi • átt erfitt með að hvílast • vilt meiri ró og jafnvægi • þarft djúpa hvíld og endurheimt