Choisir un service

Samtalið - hópar
Samtalið - hópar
60 min

Samtalið býður upp á markviss erindi og vinnustofur fyrir skóla, fyrirtæki, foreldrafélög og aðra hópa sem vilja bæta samskipti, styrkja mörk og skapa jákvæðara umhverfi. Áhersla er á hagnýta nálgun þar sem þátttakendur fá einföld og skýr verkfæri sem hægt er að nota strax í daglegum aðstæðum – með börnum, samstarfsfólki og foreldrum. Unnið er með: samskipti og ábyrgð skýr mörk og virðingu leiðir til að draga úr árekstrum sameiginlegt tungumál í samskiptum Lausnahringurinn er grunnur vinnunnar og nýtist sem einfalt og öflugt verkfæri til að efla öryggi, samvinnu og traust í hópum. Hver vinnustofa er sniðin að þörfum hópsins. Hentar fyrir: skóla og leikskóla fyrirtæki og starfsfólk foreldrafélög og fagteymi

Samtalið- einkatími
Samtalið- einkatími
60 min

Fyrir foreldra, kennara og fjölskyldur sem vilja skýr mörk og betri samskipti. Í tímanum færðu einföld verkfæri sem virka strax í daglegu lífi – byggð á Lausnahringnum sem skapar sameiginlegt tungumál í samskiptum. Ef þú vilt breytingu – þá byrjar hún hér