Einföld heyrnarmæling skimar fyrir mögulegri heyrnarskerðingu. Við mælum, greinum heyrnarkúrfu og veitum ráðleggingar um næstu skref. Mælingin fer fram í Lyfju Heyrn, Lágmúla 5.
Aðstoð með heyrnartæki ef grunur um bilun, pörun við app og kennsla á myPhonak appið. Upprifjun á umhirðu/síuskiptum og fleira þess háttar. Þessi tími er ekki hjá heyrnarfræðingi.
Ítarleg heyrnarmæling hjá löggiltum heyrnarfræðingi til að fá heyrnartæki til prufu eða til skammtímaleigu. Athugaðu að við endurgreiðum mælingarkostnaðinn ef þú kaupir heyrnartæki hjá okkur. Forfallagreiðsla, 6.800 kr., er tekin ef forföll eru ekki tilkynnt með 24 klst. fyrirvara. Best er að tilkynna forföll í síma 518 9500 eða á [email protected]. Takk fyrir skilninginn, við hlökkum til að taka á móti þér í Lyfju Heyrn.
Íslenskumælandi túlkur til staðar. Ítarleg heyrnarmæling hjá löggiltum heyrnarfræðingi til að fá heyrnartæki til prufu eða til skammtímaleigu. Athugaðu að við endurgreiðum mælingarkostnaðinn ef þú kaupir heyrnartæki hjá okkur. Forfallagreiðsla, 6.800 kr., er tekin ef forföll eru ekki tilkynnt með 24 klst. fyrirvara. Best er að tilkynna forföll í síma 518 9500 eða á [email protected]. Takk fyrir skilninginn, við hlökkum til að taka á móti þér í Lyfju Heyrn.
Hlust og ytra eyra er þrívíddarskannað og í kjölfarið framleidd sérsmíðuð heyrnarvernd. Afhendingartími er 3-4 vikur. Verð á sérsmíðaðri heyrnarvernd er 25.000-45.000 kr eftir tegund hennar og er greitt að lokinni skönnun.
Fyrir núverandi viðskiptavini Lyfju Heyrnar sem þurfa fínstillingu eða breytingu á grunnstillingu heyrnartækja.
Ertu ekki viss hvaða þjónusta hentar þér? Bókaðu símtal og við hringjum í þig til að ræða málin og ákveða næstu mögulegu skref.